Miss DiLL

Heimavinnandi húsmóðir

26.02.2007 13:01:18 / dill

Það er alltaf mánudagur

Mæ ó mæ.. lillan mín er að fara að verða 3 vikna gömul á morgun.. tímin svoleiðis flýgur áfram, það er sko einhvað sem er á hreinu.Þið ykkar sem ekki vitið það að þá ætlum við ekki að skíra hana heldur bara að nefna, og ætlum að vera með einhverja smá “nafnaveislu” hérna heima á afmælinu hans Gunna... Bara svona lítið, við, m&p, Lilja og Gunni, Amma Sigga, Áslaug og Elli, Jón Elli og Addú og auðvitað Arna og Raggi Þá eru það 14 stykki með vilingunum á Esjuvöllunum. Sem þýðir að ég þarf þá ekki að baka meira en 3 kökur Því þetta verður bara svona eftir kvöldmat kaffi. Ég get ekki beðið þangað til að ég get kallað dóttir mína sínu nafni.. Ekki alltaf að segja Lilla eins og þegar það er einhvað fólk í heimsókn. Well ég veit ekkert hva ég á að skrifa hérna meira.... Adios DilliD

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 21:01:32 / dill

Monday

Merkilegt hvað maður verður latur við að blogga alltaf. Veit eiginlega ekki hvað snýr upp eða niður á þessari blessuðu síðu minni. Ég er að verða ein af þessum húsmæðrum se er “húkkt” á barnalandi... vitleysan sem er skrifuð þarna... vá maður getur sko gleymt sér við lesturinn í umræðunum þarna. En á flakki mínu þarna í fyrrakvöld þá sá ég ansi skemmtilegt innlegg frá manneskju sem kallar sig qqqq.. Margt smátt gerir eitt stórt var fyrirsögnin... Þessi qqqq heitir víst Gunna.. ekki það að ég viti hver það er en þá setti hún inn þennan link. http://www.vf.is/tolublad/715/sida/5/default.aspx  Eins og sumir vita að þá er Sólveig Sigurðardóttir vinkona hennar mömmu. Hún er betur þekkt undir gælunafninu Sissa. Hún fékk semsagt heilablóðfall og er á leiðinni til noregs að leita sér lækninga. En vandamálið er eitt.. kennitalan í þessari grein sem linkurinn vísar á er vitlaus svo ég set hérna inn allar upplýsingar sem fólk þarf að hafa til að geta lagt henni lið og lagt inn á hana pening. 

1193-05-1260 og kt 020761-4239

 

Við fjölskyldan á Vesturgötunni erum búin að leggja þarna inn aur og skorum á þig að gera það líka J

 

Adios

 

Dillið



» 0 hafa sagt sína skoðun

10.02.2007 11:18:23 / dill

Litla stelpan mín er bara fræg :)

Fyrirmyndarstúlka í fínu samfélagi
Akurnesingar náðu þeim áfanga að verða sex þúsund talsins aðfaranótt 6. febrúar síðastliðinn, með komu ónefndrar Gunnarsdóttur í heiminn. Bæjarstjórinn Gísli S. Einarsson heilsaði upp á nýjasta íbúa Akraness um leið og tækifæri gafst. "Já, ég er búinn að halda á dömunni og hitta foreldrana og óska þeim til hamingju með allt saman," sagði Gísli.

Hann er reyndar ekki ókunnugur foreldrunum, þeim Evu Lind Matthíasdóttur og Gunnari Þór Gunnarssyni. "Ég var svo heppinn að fá að fylgjast með því þegar þau byrjuðu að vera saman. Ég réði Evu til vinnu í Norðuráli og Gunnar var einnig starfsmaður þar. Þau nálguðust hvort annað bara mjög skemmtilega og urðu svo glæsilegt par," sagði Gísli kátur. Hann vill þó ekki ganga svo langt að segja að stúlkan hafi komið í heiminn fyrir tilstilli hans. "Nei, en ég vissi mjög fljótt af því að það var von á fjölgun," sagði hann hlæjandi.

Litla stúlkan, sem er hreinræktaður Akurnesingur, er að sögn Gísla til fyrirmyndar fyrir bæinn. Hún var fimmtán merkur og 52 sentimetrar á lengd þegar hún kom í heiminn. "Hún var ókrumpuð og slétt og gullfalleg, með mikið svart hár. Hún horfði líka lengi á móti augum svona nýfædd, það var bara alveg ótrúlegt," sagði Gísli.

Bæjarstjórinn sagði íbúum Akraness hafa fjölgað hratt að undanförnu. "Þeim fjölgaði til dæmis um fimmtíu til sextíu manns bara í desember," sagði Gísli. "Við gerðum svona ráð fyrir því að sex þúsundasti einstaklingurinn kæmi í mars, apríl. Þetta er bara á undan áætlun." Fjölgunina telur Gísli vera til marks um hversu blómlegur bær Akranes er. "Það er eftirsóknarvert að vera hér. Við erum með afburðaskóla og -leikskóla og vel menntað fólk á báðum stöðum. Hér er líka töluvert framboð á húsnæði og verið að byggja mjög mikið. Ég held að ég geti sagt að atvinnuleysi sé bara í algjöru lágmarki og hafi verið um langan tíma," sagði Gísli. "Ég segi að þessi litla stelpa komi inn í fínt samfélag," bætti hann við

Það er bara ekkert annað... þessi lesning var í fréttablaðinu í dag..

 

En ég náttla þarf ekki að segja ykkur það að dóttir mín er æðislegasta barn í heiminum.


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 17:29:15 / dill

alveg að koma 1 feb

Jæja þá fer enn ein hrukkan að bætast við J maður er víst alltaf að eldast.

22 ára á fimmtudaginn og spurningin er, verð ég orðin mamma eða ekki J

 

 



Hugsa nú að prinsessan láti nú aðeins bíða eftir sér svona eins og alvöru fólkið gerir. Kemur svona fagmannlega seint J

 

 



Spilakvöld á vestó í kvöld.. víííí mamma, pabbi og Arna ætla að koma að leika við mig... en við Gunni erum að verða búin að spila myndina af Ticket to ride spilinu og ætlum að vera 5 að spila í kvöld... sjetturinn hvað maður þarf að passa þrýstinginn.. En þar sem ég er svo heppin í spilum þá hlýt ég að vinna eins og alltaf J

 

 



Haldiði að Gunni sé búinn að kaupa pakka handa mér???

 

 



Annars ætlum við að fara í mat til mömmu á fimmtudaginn... fínt að þurfa ekkert að spá í að elda. En það verður gerð önnur tilraun til að hreyfa við skvísunni í hádeginu á fimmtudaginn... svo kannski gerist einhvað J

 

 



 

 adios



 

 

Miss Dill




» 2 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 15:55:04 / dill

Fallegt :)

Í grenndinni veit ég um vin, sem ég á,
í víðáttu stórborgarinnar.
En dagarnir æða mér óðfluga frá
og árin án vitundar minnar

Og yfir til vinarins aldrei ég fer
enda í kappi við tímann.
Sjálfsagt þó veit hann ég vinur hans er,
því viðtöl við áttum í símann.

En yngri vorum við vinirnir þá,
af vinnunni þreyttir nú erum.
Hégómans takmarki hugðumst við ná
og hóflausan lífróður rérum.

"Ég hringi á morgun", ég hugsaði þá,
"svo hug minn fái hann skilið",
en morgundagurinn endaði á
að ennþá jókst milli okkar bilið.

Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk,
að dáinn sé vinurinn kæri.
Ég óskaði þess, er að gröf hans ég gekk,
að í grenndinni ennþá hann væri.

Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd
gleymdu ekki, hvað sem á dynur,
að albesta sending af himnunum send
er sannur og einlægur vinur.
 

 

 Segja svo að það þurfi mikið til að maður tárist

Adios

Dillid


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 00:01:44 / dill

Bóndadagur

Korter í krakkann  Shit það eru 15 dagar í settan dag.. og vá hvað mér er farið að kvíða fyrir fæðingunni.. vona alveg bara mest að þetta gangi allveg allt of vel

Við vorum í þorramat hjá mömmu og pabba áðan.. mikið er ég fegin að ég fékk mér núðlur áður en við fórum... finnst alveg svona matur bara vondur... Hefði samt alveg verið til í einn bjór.. en það verður að bíða í bili..

Stundum held ég að þetta blessaða barn mitt ætli bara vitlausu megin út úr mér... er hreint ekki viss um að hún viti hvert hún á að fara... allavega er maginn á mér á millllljón... og þá er ég ekki að ýkja.

 Svo er ég líka svo skemmtilega heppin að vera að brjálast útaf bjúg... hann bara situr fastur á höndum fési og fótum,.....

Gaman þegar þetta verður búið 

 AdIoS

DilliD


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 23:42:18 / dill

Flutt!

Já undur og stórmerki hafa skeð! við erum loksins flutt í höllina :) Núna hefur enginn afsökun til að koma ekki að heimsækja mig :) Adios Dillið

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 00:10:17 / dill

Merkilegt!

Hondan var í dag seld hæstbjóðanda... Halldóra Hallgrímsdóttir eða Dóra magg eins og hún er betur þekkt keypti hana á 470 þúsund krónur... Nokkrar jólagjafir frá mömmu og pabba farnar fyrir lítið... L en það passar víst ekki að hafa græjur í steisjónbíl við hliðina á barnastól...

 

 



 

AdIoS



 

 

DilliÐ



 

 




» 2 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 19:26:54 / dill

Skemmtilegt :)

Ég á svo krúttulegann frænda að það hálfa væri nóg J

Hann er 11 ára og fær 400 krónur í vikupening fyrir að vera duglegur að hjálpa mömmu sinni og pabba með heimilisverkin. (minnir að hann sjái um að ganga frá eftir matinn á mánudögum allavegana). Mamma hans og Pabbi skipta sér ekkert af því hvað hann gerir svo við peningana sína...

Hann ákvað að gefa mömmu sinni og pabba einhvað fallegt í jólagjöf svo að hann safnaði peningunum í 6 vikur til að geta keypt einhvað... Hann var sko ekki að þessu korter fyrir jól heldur fór hann í byrjun des aleinn í mjóddina í Breiðholti og kikti í búðir. Það kostaði allt svo mikið þar að honum bara blöskraði. En á endanum fann hann eina tælenska konu sem var  með bás í mjóddinni og spurði hana hvort hún ætti einhvað sem kostaði 2500. Hún átti ekkert en spurði hann hvað hann ætlaði að gera við það sem hann myndi kaupa... Hann sagði henni að það væri jólagjöf til mömmu sinnar og pabba og hann væri búinn að safna þessum peningum alveg heillengi. Konunni fannst hann svo sætur að gera svona svo að hann fékk afslátt hjá henni og keypti jólagjöf handa foreldrum sínum. En það var ekki nóg. Hann var líka búinn að sansa í skólanum gjöf handa þeim og svo á litlu jólunum hjá skátunum fékk hann pakka sem hann gaf svo mömmu sinni og pabba líka. Allavega á aðfangadagskvöld var kominn þessi svaka pakki undir tréið og mamma stráksins sá að þetta var pakki til mömmu og pabba frá Sindra.

 

 



Svona börn eru til í dag. J Það þarf kannski ekki að taka það fram að foreldrar stráksins voru svo hissa og eftir táraflóð yfir því hvað hann væri sætur að gera svona komust allir heilir í háttinn J

 

 



Mér finnst hann svo sætur að gera svona. Vonandi tekst uppeldið hjá mér það vel að barnið mitt verði með eins hreint hjarta og Sindri frændi.. J

 

 



Annars er fínt að frétta.. Ég er búin að sortera barnaföt og á bara eftir að skutla í nokkrar vélar áður en að ég verð klár í að eiga... jú á líka eftir svona smá sans eins og að flytja.. en það er nú ekki stórmál... finnst öllum nema mér held ég bara...... Sumir eru allavega ekki að stressa sig á því að flytja.... ég hefði viljað koma mér fyrir á Vesturgötunni ekki seinna en í gær!!

 

 



En það eru ekki allir eins J

 

 



En í bili

 

 



AdIoS

 

 



Kveðja  DilliÐ

 

 




» 2 hafa sagt sína skoðun

30.12.2006 00:20:42 / dill

Árið sem er að líða c

Vá við erum búin að vera viku að pússla þetta... Þetta hugsaði ég áðan þegar að ég stóð upp frá 1500 pússla púslinu sem við keyptum úti í Dublin í haust.

 

 



Það eru komnir 12 mánuðir síðan að árið 2006 gekk í garð. VÁ segi ég nú bara því þetta ár er sko búið að vera fljótt að líða. Og beytingarnar heldur betur búnar að vera miklar.

 

 



Það er margt minnisstætt af árinu sem nú er að líða. Ég fagnaði 21 árs afmælinu mínu með góðum vinum.. sumum betri en öðrum því vinabreytingar hafa orðið þónokkrar á árinu. Heldur hefur bæst í hópinn en aðrir valið að fara aðra leið. Sannur vinur er sá sem kemur þegar veröldin hrynur... já ég er vinur vina minna og finnst sko ekkert að því. Þó að það þurfi kannski að kosta það að maður glati öðrum að þá sér maður hver stendur manni næst.

 

 



Ég fór í tvær utanlandsferðir á árinu. Þjóðhátíðin var tekin snemma í ár. Sem betur fer segi ég nú bara því annars hefði ekki verið þjóðhátíð. Ég fór til Germany með SNILLINGUNUM Benna og Valla í ógleymanlega tónleikaferð þar sem bornar voru augum heimsþekktar hljómsveitir á borð við Alice in chains, kaiser chiefs, red hot chilli peppers sem og guns´n´roses, metallica og fleiri góð bönd. Við mættum á tvær hátíðir. Rock am ring sem er hátíð mtv haldin á nurburgring formúlubrautinni og svo pink pop hátíð semmm mhaldin er í Hollandinu.

 

 



Seinni ferðin var aðallega verslunarferð. Við Gunni skelltum okkur til Dublin og versluðum jólagjafir, barnaföt og föt á Gunna. Já ófædda prinsessan okkar á sko nóg af samfellum og sokkabuxum þangað til hún verður eins árs J

 

 



Í Júní komst ég svo að því að ég er að fara að fá nafnbótina MAMMA. Já ég geng með barn undir belti sem á að líta dagsins ljós 3 febrúar árið 2007.

 

 



Húsakaup á árinu voru líka stór merkileg. Því það er kannski ekki venjan að fólk byrji á þvi að kaupa sér 3 hæða hús með 3 földum bílskúr svona sem fyrstu eign, en við fjárfestum í “höllinni” okkar á árinu og fengum hana afhenta 1 des og bíðum spennt eftir að geta flutt inn og hafið fjölskyldulífið J

 

 



Steisjón bíll, barnavagn og sportari voru líka á innkaupalistanum.... og að sjálfsögðu búið að ganga frá því.

 

 



Vinnustaðirnir á árinu urðu 4. Norðurál, Skagastál, Café Mörk og Esso eru þeir staðir sem að ég stoppaði á. Þó styttra á sumum heldur en öðrum en á árinu tók ég próf sem leyfir mér að keyra allar þær stærðir að bílum sem mig lystir J

 

 



 

 



Jæja fátt meira er hægt að segja hér í þessari “stuttu” samantekt af árinu sem er að líða.

 

 



En vinum mínum nær og fjær þakka ég frábært ár og megi það næsta vera ann BETRA J

 

 



 

 



Ég læt hérna lista fylgja með sem þið lesendur megið svara J

 

 



  1. Hvað heitir þú?
  2. Hvernig þekkir þú mig?
  3. Hvað er miðnafnið mitt?
  4. Á ég einhver systkyni?
  5. Trúi ég á Guð?
  6. Hvernig bíl á ég?
  7. Hvernig heldur þú að mér gangi að vera mamma?
  8. Er ég vinur vina minna?
  9. Ert þú vinur minn?
  10. Langar þig að segja mér einhvað skemmtilegt ?

 

 



 

 



Adios  The Dill


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.12.2006 15:43:42 / dill

hvað þá?

Eins og glöggir netverjar hafa tekið eftir hefur þessi síða aðeins breytt um útlit og allt gamalt farið út af henni.....

Nýtt skriferí mun birtast hér með nýju ári.

Kveðja Dillið


» 0 hafa sagt sína skoðun


Klukkan